28júlí
Hæhæ Anna hér
Á ég að segja ykkur fréttir við alkarnir 3 ætlum allar 3 að djamma saman í kvöld og vitið hvað er langt síðan að það skeði síðast? Ef ekki þá kemur svarið hér 17 júní síðasliðinn þá djömmuðum við saman síðast. Alfa á líka afmæli á morgun þannig að maður verður að djamma með þeim. Það þýðir víst ekkert annað hehe. Hvernig væri samt að kommenta eða kvitta í gestó þegar að þið kíkjið hérna inná síðuna. Skrifa hvernig djammið var á morgun eða eitthvað álíka nenni ekki að skrifa meira nuna
Bæbæ Anna
08júlí
Eg veit að við erum ekkert að standa okkur með þessa síðu en ég nenni ekki að vera ein með hana. En ég er búin að eiga afmæli og er ég því orðin 20 ára. Alfa á afmæli eftir 21 dag og þá verður hún líka 20 ára. Það er svo sem lítið að frétta af okkur. Alfa er úti á spáni núna og ég er ný komin heim frá spáni. Ég og Alfa tókum 2 djömm saman og auðvitað var Neda með okkur. Það var ekkert smá gaman þó að ég muni eiginlega ekkert eftir djammi 2 þar sem að ég var svo rosalega full. Ég týndi veskinu mínu þarna á einu djamminu en það er allt í lagi það var ekkert svo mikill peningur í því. Það var samt geggt gaman að vera úti en ég hlakka til að fá Ölfu heim til að hafa eitthvað að gera. Hef ekkert heyrt í Sonju síðan að ég kom heim, ég hef eiginlega ekki heyrt í neinum af vinum mínum nema Ködu og það er af því að það veit enginn að ég er komin til Akureyrar. Hvað á ég eiginlega að segja ykkur meira annað en að ég verð að fara að sofa bráðum þar sem að ég er að fara að vinna í fyrramálið klukkan 7. Ég er bara ekkert þreytt þannig að ég get ekki sofnað. En ég nenni samt ekki að skrifa ferðasöguna hérna inná þessa síðu svo að ef að ykkur langar að lesa hana þá verðið þið bara að fara á
www.blog.central.is/akureyrargellan því að þar er hún. Það er sko lengsta blogg sem að ég hef skrifað á ævinni og ég tók sko 2 daga í að skrifa það blogg. Kannski maður reyni að halda þessari síðu aðeins opnari núna þar sem að ég ákvað að blogga hérna smá blogg núna. Endilega kvittiði í gestabókina okkar eða commentiði hvað ykkur finnst um það að opna þessa síðu aftur sem djammsiðuna okkar allra 3 sem sagt mínn, Ölfu og Sonju. Vona að þið svarið þessu svo að við vitum það allar þrjár. Núna nenni ég eiginlega ekki að skrifa meira þannig að ég er að spá í að láta þetta bara gott heitið í bili og skrifa fljótt aftur ef að þið svarið þessari spurningu
Kveðja Anna Bryndís
10mars
Hæhæ í gær varð Sonja 20 ára til hamingju með það. Það var djammað vel og lengi í gær, fyrst fórum við og borðuðum hjá Sonju, svo fórum við og náðum í Lindu og Erik en þá var Kiddý ekki komin svo að við vorum þar frekar lengi það var bara fínt sko. Um 23:00 fórum við svo heim til hennar Evu þar sem að Sonja var að halda party. Þar voru Jói, Eva, Sonja, Helgi, Elmar, Bogga, Alfa, Linda, Erik, Joddi, Skúli, Einar og einhverjir aðrir og allir að drekka. Þegar að allir voru ornir ágætlega fullir var farið í sjallan og dansað og skemmt sér. Þar hitti ég Díönu og Örnu og einhverja aðra það var náttúrulega bara gaman í sjallanum en allt of mikið af fólki þarna. Eg ákvað að setjast bara hjá Örnu og Díönu og þá hitti ég Einar aftur og hann settist hjá okkur. Svo kom Alfa og sagði að ég, hún, Linda, Erik og Einar værum að fara á kaffi akureyri að hitta hana Gunnsu og við gerðum það og dönsuðum og dönsuðum aðeins meira alveg geggt gaman. Alfa lét sig svo hverfa og ég hitti Sunnu og Andra og var bara með þeim að dansa geggt gaman sko. Man nú samt ekki klukkan hvað ég fór heim en Harpa keyrði mig alla vegna heim. Í dag hef ég eiginlega ekkert gert en í kvöld er stefnan tekin á sambíóið með Ölfu og Sunnu eða það er alla vegna planið er að fara að hringja í sunnu og gá hvort að hún ætli ekki pottþett að koma með okkur ef hún kemur ekki þá förum við Alfa bara 2 saman. En ég er að spá í að láta þetta duga í bili. Kveð að sinni
Kveðja Anna Bryndís
P.S, Þar sem að það ætlar engin að skrifa hérna um afmælið hennar sonju þá ætla ég bara að copea það sem að ég skrifaði á mína síðu yfir á okkar.
25febrúar
Hæhæ um helgina skelltum við Alfa okkur á djammið 2 og viti menn ég var edrú ALLA helgina. Á föstudagskvöldinu þá fórum við til Lindu að taka okkur til og Linda og Alfa byrjuðu að drekka þar. Eitthvað um 23:00 þá skelltum við okkur heim til Esterar en þar voru Kada, Árdís, Smári og auðvitað Ester líka og þar var bara haldið áfram að drekka meira að segja ég drakk (svala hehe). Vorum bara eitthvað að hlusta á tónlist og spjalla en svo var haldið niður á kaffi ak og stóð til að ég myndi skemmta mér alveg geggt vel ásamt hinum.Kada og Árdís fóru bara heim eitthvað um eitt nenntu þessu ekki eða eitthvað. Því miður komust Ester og Smári ekki inn þannig að ég fór ekki heldur inn þar sem að ég var driver og ekki ætlaði ég bara að skilja þau eftir af því að ég er svo góð. Þannig að við rúntuðum bara og skemmtum okkur þannig sko alveg til eitthvað um 3 þá náði ég í Lindu og Ölfu og keyrði þeim á capone og missti rúntfélagan minn hana Esteri inni með stelpunum. Kom aftur korteri seinna og þá bara mátti alfa ekki vera inni þannig að eg keyrði þeim aftur á kaffi ak og hélt svo áfram að rúnta. Um 4 náði ég svo aftur í þær og keyrði þeim og Hjalta heim, keyrði svo Svölu og Díönu heim, náði svo í Esteri og keyrði hana heim og svo fór ég heim. Á laugardagskvöldinu þá ætluðum við bara að spila og hafa gaman en nei þá fór Alfa að drekka og ég varð aftur driver sem að er bara allt í besta lagi. Fórum heim til Snjólaugar eitthvað að skemmta okkur og taka okkur til og svo keyrði ég þeim til Ingu og náði svo í Ölfu, hún fór nefnilega að skipta um föt svo keyrði ég Esteri heim og endaði heima hjá mér að skipta um föt. Þaðan var farið til Ingu og svokeyrði ég Snjósu frænku og einum strák á kaffi ak. Náði svo í Ingu, Ölfu, Ívar og Bjössa og svo fórum við á kaffi ak. Eftir kaffi ak þá var bara eftirparty heima hjá Snjósu og það var alveg fullt af fólki þar. Við Alfa og Inga fórum heim eitthvað um 7 í morgun og ég steinsofnaði strax og ég kom heim og vaknaði svo eitthvað um 13:30 og er eiginlega ekkert búin að gera síðan þá. Nenni ekki að skrifa meira.
Kveðja Anna Bryndís
21febrúar
Hæhæ við skelltum okkur á djammið á laugardaginn byrjuðum í partyi hja kiddy og forum svo a capone. Það voru teknar einhverjar myndir og eru þær komnar inna siðuna munið að skrifa i gestabokina okkar
kveðja Anna Bryndís
15febrúar
hæhæ við fórum í afmælið hans eriks á Laugardagin og það var geggjað sko og tokum nokkrar myndir og erum búinn að setja þær inn :D endilega kvitta í gestabókina :) kv Alfuzzz
06febrúar
Jæja það er mánudagur í dag og hann er bara alveg að verða búin þannig að það fer bara alveg að koma föstudagur aftur en alla vegna ætla ég að skrifa pínu um helgina. Á föstudaginn var ég bara að vinna og dagurinn svona frekar fljótur að líða eins og flestir dagarnir í vinnuni eru. Um kvöldið var planið að fara á bingó en það varð ekkert af því þannig að ég horfði bara á one tree hill sem að var klukkan 20:00 og svo um 22:00 eða eitthvað álíka þá fór ég bara og hitti hana Ölfu og var eitthvað með henni hún var nefnilega að drekka en það er ekkert nýtt hehe djók. Við ákváðum að kíkja til Evu og Jóa og þegar að þangað var komið þá voru Sonja, Helgi og Jóddi eða hvað hann nú heitir þar. Ég og Alfa stoppuðum ekki lengi þar því að ég þurfti að redda Hjalta litla hamborgara fyrir Hjalta stóra en svo var bara hætt við það. Eftir það ákváðum við Alfa að gá hvað stelpurnar Kata og Ester væru að brasast og buðum þeim að koma á rúntinn með okkur, svo kom Arna líka en ég fór samt bara snemma heim þetta kvöld eða um 1 leitið. Á laugardeginum var sofið og hitt Kötu, við tvær flippuðum eitthvað saman eins og við erum vanar að gera þegar að við hittumst. Um kvöldið var svo farið heim til hennar Esterar og drukkið, við byrjuðum frekar seint eða eitthvað um 22:00 eða eitthvað álíka en það er skárra en að sleppa því. Þar voru Ester, Kata, Alfa, Jóna, Svava og ég, við skemmtum okkur alveg geggt vel en fórum svo með taxa niður á capone eitthvað um 1 og vorum þar alveg til 4 það var ekki neitt smá gaman sko. Eftir 4 var samt ekkert svo gaman þar sem að við höfðum ekkert far og þurftum að bíða eftir leigubíl í fokking 1 og 1/2 tíma. Þegar að takinn kom loksins þá fórum við bara til Snjólaugar en þar voru Snjólaug, Bjössi, Inga og Sólveig. Þegar að líða fór á morgun þá komu Beggi, Hrannar, Elvar og barstelpan (allt fólk sem að er að vinna á capone) og það var alveg geggt gaman sko. Um 7 eða hálf 8 þá fór ég heim að sofa enda orðin alveg geggt þreytt, svo vaknaði ég bara snemma á sunnudeginum eða um 1 eða eitthvað álíka og skrapp í búðina og svo heim til Esterar og við tvær náðum í Kötu og fórum svo aftur heim til Esterar. Ég fór svo bara heim eitthvað um 17:00 eða eitthvað álíka og fór svo bara ekkert aftur út það sem eftir var af deginum. Í dag er ég svo bara búin að vera að vinna og eitthvað álíka. Hitti Ölfu, Ester, Kötu og Hjalta áðan og við rúntuðum eitthvað og ég var bara að koma ekki fyrir svo löngu síðan en núna er ég að spá í að fara að sofa þannig að ég býð bara góða nótt og muniði eftir gestó.
Kveðja Anna Bryndís
07janúar
Jæja þá eru áramótin búinn og þau voru geggjuð sko... við byrjuðum að drekka heima og svo Hittumst við Sonja og Anna heima hjá mér og löbbuðum heim til Evu því þar var party og við drukkum meira þar og vorum allar ornar blind fullar þegar við byrjuðum að labba í sjallan, en á leiðinni fórum við í sprengjustríð og henntum froska í hvort annað vááá það var snild sko..
Svo þurfti Anna að skreppa eitthvað svo ég og Sonja og Hjalti ákvuðum að hitta bara Önnu í Sjallanmu.
Palli var DJ og hann er sko GEGGJAÐUR dj sko...
En Anna greyjið fann okkur aldrei i sjallanum svo við hittum hana ekkert fyrr en Sjallin var búinn og þá kíktum við niður í bæ að hitta fólkið og svo smá runnt og pikkuðum eikkern gaur til að skutla honum heim og ég og Anna tókum pizzuna hanns og hristum hana muhahaha svo greyjið strákurinn fekk ábyggjilega kramda pizzu..
En Svo fór ég bara heim því ég var orðin svo svöng svo ég fekk mér að borða horði smá á video og steinsofnadi..
En Anna og Sonja voru á runntinum lengur og gera bæjinn brjálaðan eins og venjulega því þær eru svo klikkaðar hehe:D
En allavega er ég buinn að setja nokkrar myndir inn á síðuna frá því um áramótin heima.
OG svo setti ég nokkrar gamlar myndir frá Californiu inn svona með:P
01janúar
Hæhæ á ég að segja ykkur við fórum á Basshunter í sjallanum í fyrradag og við vorum að ég held allar alveg slatti fullar en það var geggt gaman það er sko fullt af myndum af þessu kvöldi þetta var alger snilld. Ég (Anna), Alfa, Sonja, Hjalti og Díana fórum öll saman en Díana fór eiginlega strax og það sökkar en það er bara hennar missir því að hún missti af geggt góðu djammi verð ég að segja ykkur utan við það að Jonas Altberg spilaði frekar lítið og það sökkar en hinn hljómsveitinn var geggt góð líka eða mér fannst það alla vega. Helgi reddaði svo kvöldinu alveg fyrir okkur en hann skutlaði okkur einmitt heim sem að var náttúrulega bara snilld. Þakka þér fyrir farið Helgi ef að u lest þetta.
Í gær var svo gamlársdagur og auðvitað skelltum við okkur á djammið. Ég hitti Sonju um 8 leitið og settum nokkrar myndir inná síðuna okkar og ætluðum svo að fara með Ölfu og Hjalta á brennuna en þau beiluðu á okkur þannig að ég og Sonja fórum bara 2 og skemmtum okkur alveg konunglega sérstaklega með ég bið að heilsa mömmu þinni og ohhhh þetta er svo gott hehe ekkert nema snilld smá einkahúmor í gangi hehe. Svo fór ég bara heim og horfði á skaupið sem að mér fannst fyndið veit ekki með ykkur hin svo skutum við flugeldum upp og ég fór eiginlega frekar lítið út það var svo kalt var frekar inni að drekka. Klukkan 00:00 þá var komið 2007 alveg geggt og þá voru allir kysstir sem að voru hérna og sem að komu hingað. Eitthvað um 1 á nýja árinu þá komu Sonja, Sigurvin og Örvar og náðu í mig og við fórum að kaupa miða í sjallan því að stefnuni var haldið þangað seinna um kvöldið. Sivurvin keyrði okkur Sonju heim til Ölfu og við fórum smá stund þar í heimsókn, svo gengum við heim til Evu og vorum að sprengja á leiðinni froska hehe og ég kastaði í ölfu eða rétt hjá henni og hún fríkaði næstum út hehe. Þegar að við komum til Evu þá var bara haldið áfram að drekka og drekka og svo drukkum við aðeins meira hehe en svo gengum við inní bæ og auðvitað settist ég á bekk og það var eins og ég hefði pissað á mig svo að Sigurvin keyrði mig heim og það var alveg hellingur af fólki þar og ég auðvitað hitti þau öll og kyssti þau. Sigurvin keyrði mig svo niður í bæ, þar fór ég í smá stund í sjallan og fann ekki stelpurnar þannig að ég nennti ekki að vera þar og fór út og hitti Sillu og Esteri. Við fórum eitthvað að ganga og hittum Ívar og ég gekk bara með þeim þremur þar til að Alfa hringdi í mig og kom og hitti okkur náttúrulega ásamt Sonju og Hjalta. Ég fór með þeim í bíllinn hans Sigurvins og við rúntuðum eitthvað keyrðum fólki heim og læti. Svo fór ég heim um 6:40 eða eitthvað og steinsofnaði strax. Núna er ég vöknuð á þessu fallega nýja ári og er ekki að gera neitt hehe en ég held að þetta sé bara komið alveg geggt gott í bili finnst ykkur það ekki líka, ég vona það því að núna er ég hætt.
Kveðja Anna Bryndír
P.S. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla og ekki má gleyma það eru komnar fullt af myndum allir að kíkja og skrifa í gestabókina